
Smelltu á Browse hnappinn. Þá birtist mynd af þeim skrám sem eru á tölvunni þinni. Oftast í Windows þá liggja myndirnar þínar undir möppunni "My Pictures". Þegar þú hefur fundið myndina smellir þú á Open hnappinn.
Þegar þessu er lokið smellir þú á hnappinn Upphlaða mynd. Nú er myndin send til okkar í gegnum netið og getur það tekið smá tíma.
Venjulegar ADSL tengingar taka á móti gögnum tíu sinnum hraðar en að senda frá sér gögn, það getur því tekið dágóðan tíma að send okkur myndir. Eftir nokkrar mínútur birtist myndin þín á skjánum ásamt nýju textasvæði fyrir skilaboð aftan á myndina.
Þú velur síðan stærð myndarinnar sem þú vilt láta prenta í samræmi við þau hlutföll sem myndin er í. Hefðbundnar stærðir á myndum úr digital myndavélum eru:
- 20x30cm
- 25x35cm
- 30x45cm
- 35x50cm.

Ef þú ert að panta strigamynd þá þarftu að velja hvernig hliðarnar á striganum eiga að vera. Flestar strigamyndir eru þannig að þær blæða út á hliðarnar, þú getur einnig valið svartar eða hvítar hliðar. Svo getur þú bara látið okkur finna bestu lausn.
Hér má sjá hvernig glugginn lítur út þegar búið er að upphlaða myndinni:

Í lokin þá velur þú hve margar myndir þú ætlar að panta og smellir á kaupa.
Smelltu hér til að panta strigamynd
Smelltu hér til að panta mynd á ljósmyndapapprí
Vöruflokkar
